Um kórinn
Íslendingakór Árósa var stofnaður af Gunnari Sigfússyni, núverandi stjórnanda kórsins, í janúar 2015. Starfsemin hefur allt frá upphafi snúist um að skapa vettvang fyrir Íslendinga til að hittast yfir sameiginlegu áhugamáli, og fátt er betur til þess fallið en kórsöngur. Kórinn syngur fjölbreytt íslensk lög, s.s. ættjarðarlög, sálma og þjóðlög í bæði hefðbundnum og nýjum útsetningum.
Félagsskapurinn í kringum kórinn og tónlistina skipar þar að auki mikilvægan sess. Því er lögð rík áhersla á skemmtanagildi og gott andrúmsloft innan kórsins, bæði á æfingum og utan, á viðburðum og allt þar á milli. Kórinn hefur vaxið og þroskast frá upphafi og er ennþá í stöðugri þróun, bæði í stærð og gæðum. Kórinn hefur tekið þátt í mörgum viðburðum og haldið skipulagða tónleika. Árlegir skipulagðir tónleikar kórsins eru sumartónleikar að vori og jólatónleikar í desember. |