Stjórnandinn - Gunnar Sigfússon
Gunnar Sigfússon er fæddur og uppalinn á Laugum í Þingeyjarsveit. Hann byrjaði ungur að hafa áhuga á tónlist og byrjaði við 8 ára aldurinn að æfa á trompet og syngja í barnakór. Tónlistin hefur fylgt honum gegnum lífið og árið 2013 flutti hann til Danmerkur til að stunda nám í tónlistarfræði við Háskólann í Árósum, þar sem hann fékk kennslu í kórstjórn af Jens Johansen og Erling Kullberg. Nú stundar hann nám í tónlistarakademíunni í Árósum (The Royal Academy of Musik, Aarhus) með áherslu á tónlistarkennslu- og miðlun (Almen Musikpædagogik). Þar hefur hann fengið kennslu í kórstjórn af m.a. Carsten Seyer-Hansen, Søren Kinch-Hansen og Malene Rigtrup. Gunnar hefur mjög breiðan áhuga á tónlist, og aðalhljóðfæri hans í náminu er trompet.
Gunnar stofnaði Íslendingakór Árósa í janúar 2015, með ósk um að safna saman Íslendingum með áhuga á söng og kórstarfi og með því styrkja og efla menningarlíf Íslendinga á svæðinu. Þetta er fyrsti kórinn sem Gunnar stjórnar og má með sanni segja að frumraunin takist vel til. Kórinn hefur þroskast og stækkað á þessum árum og er ennþá í stöðugri þróun.
Fyrir utan að stjórna Íslendingakór Árósa og sinna tónlistarnáminu, syngur Gunnar í kórnum Vocal Line, ásamt því að spila á trompet í Disneybandinu Luftens Helte og bigbandi tónlistarakademíunnar under stjórn Jens Christian "Chappe" Jensen.